flugfréttir
Airbus A350 í Keflavík í prófunum í hliðarvindi
- Flugu A350 til Íslands er þeir heyrðu af "góða" veðrinu
Eins og sést þá eru aðstæður mjög góðar fyrir hliðarvindsprófanir núna. A350-vél Airbus (MSN1) á Flightradar24 í kvöld kl. 21:28
Ein af A350 tilraunavélum Airbus er nú stödd hér á landi þar sem hún gengst undir flugprófanir í hliðarvindi á Keflavíkurflugvelli.
A350 tilraunahópurinn frá Airbus heyrði af veðráttunni á Íslandi og var því ákveðið að nýta sér veðuraðstæður
sem flestir flugmenn vilja helst forðast undir venjulegum kringumstæðum.
Það er fyrsta tilraunavélin, MSN1, sem var send til Keflavíkur en hliðarvindsprófanir með Airbus A350 hafa einnig farið fram
á Clemont-Ferrand/Auvergne flugvellinum í Frakklandi.
Keflavíkurflugvöllur verður sífellt vinsælli til flugprófana á nýjum farþegaþotum en Dreamliner-vélarnar hafa verið m.a.
prófaðar hér og lengri útgáfan, Boeing 787-9 kom hingað í apríl í sama tilgangi og það sama má segja um risaþotuna
A380.
Tilraunaflugmennirnir eru í augnablikinu að nota 11/29 brautina (vestur/austur) þar sem gengur á með norðan
stinningskalda.
A350 á Keflavíkurflugvelli um kvöldmatarleytið í gær - Ljósmynd: Johann Thormar
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.