flugfréttir
Greenland Express fær leyfi til að hefja innanlandsflug á Grænlandi
- Einokun Air Greenland í innanlandsflugi á enda
Greenland Express mun hefja innanlandsflug í ágúst í sumar
Greenland Express hefur fengið leyfi til að hefja innanlandsflug á Grænlandi en með þessu endar áratugalöng einokun Air Greenland í grænlensku innanlandsflugi.
Greenland Express hefur beðið eftir leyfinu frá því sl. sumar en landsstjórnin á Grænlandi samþykkti beiðni félagsins þann 7. apríl um að fá að hefja áætlunarflug með farþega og frakt innan áfangastaða á Grænlandi.
"Við erum mjög ánægðir með þessa jákvæðu niðurstöðu", segir Gert Brask, framkvæmdarstjóri Greenland Express. - "Með þessu getum við flogið með farþegar frá Billund og Kaupmannahöfn áfram til allra helstu áfangastaða á Grænlandi og einnig flogið Grænlendingum frá helstu byggðarkjörnum til Danmerkur".
Frá flugvellinum í Ilulissat
Gert er ráð fyrir að innanlandsflug Greenland Express hefjist í ágúst í sumar og er verið að undirbúa flugáætlun milli staða á borð við Nuuk, Upernavik, Ilulissat, Aasiaat, Sisimiut, Manitsoq og Paamiut og einnig verður stefnt á að hefja þyrluflug til svæða sem eru syðst á Grænlandi.
Greenland Express er á lokasprettinum að ganga frá kaupum eða leigu á nýrri farþegaþotu og þyrlu sem er liður í innanlandsfluginu á Grænlandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.