flugfréttir

Fljúgandi bíll brotlendir í tilraunaflugi í Slóvakíu

11. maí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 07:25

Flugbílinn eftir brotlendinguna rétt hjá bænum Janíkovce í Slóvakíu

Nýr flugbíll sem verið er að þróa í Slóvakíu brotlenti til jarðar í fallhlíf eftir að tilraunaflug fór úrskeiðis sl. föstdag.

AeroMobil 3.0 er einn af þeim fljúgandi bílum sem von er að komi á markaðinn á næstu árum en prótótýpan er nú að ganga í gegnum viðamiklar prófanir á flughæfni áður en framleiðslan hefst.

Það var Stefan Klein, framkvæmdarstjóri AeroMobil, sem var sjálfur að fljúga vélinni þegar óvæntar aðstæður komu upp í 900 fetum en hann náði að virkja fallhlífina til að koma í veg fyrir að brotlendingin yrði alvarlegri.

Klein slapp með skrámur og slasaðist ekki en var fluttur á sjúkrahús þar sem hann hlaut minniháttar bakáverka.

Fyrirtækið er að fara yfir gögnin úr fluginu til að komast að því hvað fór úrskeiðis en vélin varð fyrir nokkrum skemmdum.

"Það er nauðsynlegt að gera tilraunir á öllum þáttum með prótótýpunni svo hægt sé að gera betrumbætur á þeim atriðum fyrir næsta tilraunaflug", segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

AeroMobil 3.0 flaug í fyrsta sinn árið 2014 en Juraj Vaculik, annar eigandi fyrirtækisins, segir að flugbílinn verði markaðsettur fyrir ríka auðmenn og efnaða flugáhugamenn.

AeroMobil hefur unnið að flugbílnum frá árinu 1990 en það tók yfir 20 ár að þróa fyrstu þrjár útgáfurnar, AeroMobile 1.0, 2.0 og 2.5.

AeroMobile 3.0 var fyrst kynntur til sögunnar árið 2014 á Pioneers Festival í Vín en ekki er nein dagsetning komin á það hvenær flugbílinn kemur á markaðinn en verið er að vonast til þess að afhendingar geti hafist árið 2017.



Stefan Klein, byrjaði að þróa AeroMobile flugbílinn fyrst árið 1990







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga