flugfréttir
Talið að brakið tilheyri Boeing 777
- Sérfræðingar hjá Boeing segja að flapsinn tilheyri sömu gerð og flug MH370
Malasíska farþegaþotan hvarf þann 8. mars árið 2014 og er eitt dularfyllta flugvélahvarf sögunnar
Sérfræðingar frá Boeing segja að hluti af flugvélavæng, sem fannst á Reunion-eyjunni, austur af Madagascar í Indlandshafi, sé mjög líklega af Boeing 777 og sé því ekki um neina aðra vél að ræða en malasísku farþegaþotuna, flug MH370.
Engin önnur Boeing 777 farþegaþota hefur farist á sjó og er því ekki um neina aðra vél að ræða en flug MH370 þar sem aðeins fjórar Boeing 777 vélar hafa eyðilagst.
Um er að ræða hluta af flapsa vélarinnar (flaperon) og hafa heimildarmenn sagt að verksmiðjunúmer á hlutnum passi við Boeing 777 framleiðsluna en enn á þó eftir að staðfesta það formlega.
Ekki er enn komin opinber staðfesting frá Boeing en von er á frekari fregnum á næstu klukkutímum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.