flugfréttir

Þrjár yfirgefnar júmbó-þotur með íslenskri skráningu óskast sóttar

- Hafa staðið frá árinu 2009 á flugvellinum í Kuala Lumpur

7. desember 2015

|

Frétt skrifuð kl. 19:16

Vélarnar þrjár bera skráninguna TF-ARN, ARM og ARH

Flugvöllurinn í Kuala Lumpur í Malasíu leitar að eiganda að þremur júmbó-þotum sem hafa staðið á flugvellinum í langtímageymslu í nokkru ár en vélarnar, sem eru fraktvélar af gerðinni Boeing 747-200F, eru með íslensku skráningarnúmerum.

Malaysia Airports, sem á og rekur Kuala Lumpur International (KUL), setti inn smáauglýsingu í malasíska dagblaðið The Star eftir að ekki náðist í þann flugrekstraraðila sem starfrækir vélarnar þrjár en hann hefur 14 daga til að sækja vélarnar. - „Ef þú vitjar ekki vélanna innan 14 daga frá dagsetningu þessa bréfs þá munum við nýta rétt okkar til að selja þær eða fara fram á sektir samkvæmt reglugerðum“, segir í viðvöruninni.

Vélarnar þrjár hafa skráningarnúmerin TF-ARM, TF-ARN og TF-ARH og hafa þær staðið árum saman á stæðunum B61 og M3.

Vélarnar voru áður í eigu Air Atlanta sem er ekki núverandi eigandi að vélunum en TF-ARN hefur verið á flugvellinum í Kuala Lumpur a.m.k. frá árin 2009 en hún var seinast í notkun hjá MASCargo. TF-ARM flaug áður fyrir Saudi Arabian Airlines Cargo en hún, ásamt TF-ARH, hafa þó verið í skemmri tíma en TF-ARN á flugvellinum í Kuala Lumpur.

Myndirnar af júmbó-vélunum þremur á dagblaðinu The Star í Malasíu



Tvær af þeim þremur Boeing 747 vélum sem standa á flugvallarsvæðinu í flugvellinum í Kuala Lumpur







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga