flugfréttir
Myndband: Flugmaður skríður inn um gluggann til að opna stjórnklefann
Þegar dyrnar inn í stjórnklefann opnast ekki þá þarf að bjarga sér á annan hátt
Hvað gerist þegar flugmenn læsa lyklana óvart inni í flugvélinni og komast ekki inn í stjórnklefann? - Jú, þeir þurfa að skríða inn um gluggann.
Að vísu hefur Boeing 737 ekki neina „bíllykla“ eins og Toyota Avensis þar sem farþegaþotum er ekki „startað“ og læst
með sambærilegum hætti.
Hér að neðan má sjá frekar spaugilegt atriði sem sem ónefndur aðili náði á myndband á flugvelli út í heimi sem sýnir
flugmann klöngrast inn um gluggann til að komast inn í stjórnklefann.
Ekki er vitað nákvæmlega hvað vandamálið var í þessi tilfelli en að öllum líkindum hafa dyrnar inn í stjórnklefann
staðið á sér þar sem öryggiskóðinn hefur ekki virkað til að opna hurðina eða þeir hreinlega gleymt aðgangsnúmerinu.
Allavega má sjá að þeir hafa haft húmor fyrir þessu þar sem annar flugmaðurinn er að taka gjörninginn upp á símann og báðir hlægja þeir af þessu ásamt starfsmanni flugvallarins.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.