flugfréttir

Icelandair á níunda lengsta flug í heimi með Boeing 757

- Lengsta Boeing 757-flug í heimi er 9:40 klukkutíma flug með Delta

20. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:27

Icelandair kemur 6 sinnum fyrir á topp 50 listanum yfir lengstu flugin með Boeing 757

Þótt að Boeing 757 hafi ekki verið markaðssett sem mjög langdræg farþegaþota þá hefur hún samt sem áður ágætis flugþol en mörg flugfélög, sem hafa Boeing 757 í flota sínum, hafa notað vélarnar til fjarlægari áfangastaða en margan skyldi gruna.

Alltumflug.is tók saman lista yfir 50 lengstu áætlunarflug í heiminum í dag með Boeing 757 en þar má finna sex flugferðir á vegum Icelandair og þar af er eitt flug Icelandair á topp 10 listanum.

Lengsta áætlunarflug sem flogið er í heiminum í dag með Boeing 757 tekur 9 klukkustundir og 40 mínútur en um er að ræða flug Delta Air Lines, fug DL201, frá New York (JFK) til Pisa á Ítalíu en fjarlægðin þar á milli spannar yfir 6.600 kílómetra.

Delta situr einnig í 2. sæti listans með flugi milli Raleigh-Durham flugvallarins í Norður-Karólínu til Parísar sem er 9:30 klukkustunda langt flug en í 3. sæti kemur flug United Airlines milli Arlanda-flugvallarins í Stokkhólmi og Newark-Liberty í Bandaríkjunum.

70% af þeim lengstu eru yfir Atlantshafið

Af þeim 50 lengstu flugferðum sem flognar eru með Boeing 757 þá eru 35 af þeim áætlunarflug yfir Atlantshafið milli Norður-Ameríku og meginlands Evrópu og Bretlandseyja sem nemur 70% af lengstu Boeing 757 flugferðum heimsins.

Boeing 757 þota Delta Air Lines í lendingu á flugvellinum í Pisa - Lengsta áætlunarflug sem flogið er með Boeing 757

Delta Air Lines, American Airlines og United fljúga flestar lengstu Boeing 757 flugin en bandarísku flugfélögin þrjú hafa notað Boeing 757 vélarnar til að tengja bæði stærri og smærri borgir saman beggja megin Atlantsála.

Delta hefur 6 flugferðir á listanum en fimm þeirra eru í 10 efstu sætunum en félagið flýgur fimm flug til Evrópu með Boeing 757 og eina flugferð til Dakar í Senegel frá New York JFK sem er sjöunda lengsta flug í heimi með Boeing 757.

United flýgur flestar lengstu Boeing 757 ferðirnar en á listanum eru 17 flugferðir, 16 til Evrópu og ein til Suður-Ameríku frá Bandaríkjunum sem er flug UA1005 frá Newark (EWR) til Lima í Perú sem er í 16. sæti listans.

American Airlines hefur fæst flug á lista af bandarísku flugfélögunum eða alls fjórar flugferðir með Boeing 757 en þrjú af þeim eru yfir Atlantshafið og ein til Suður-Ameríku sem er flug AA213 frá Miami til Brasilia, höfuðborg Brasilíu.

Icelandair með 6 flug á listanum

Lengsta flugið í leiðarkerfi Icelandair er flugið til Portland í Oregon en það flug er í 9. sæti listans með flugtíma upp á 8 klukkustundir en næsta flug Icelandair lendir í 20. sæti sem er flugið milli Keflavíkur og Seattle.

TF-FIP (Snæfell) á flugvellinum i Portland í júní í sumar

Næst skorar Icelandair í 24 sætið með Denver-fluginu og þá kemur Vancouver-flugið í 26. sæti og Orlando-flug Icelandair kemur strax í næsta sæti þar á eftir númer 27 en Icelandair flýgur til Orlando yfir vetrartímann. Sjötta og seinasta Icelandair-flugið kemur í 48. sæti listans sem er flugið til Edmonton í Kanada.

Rússneska flugfélagið VIM Airlines, sem hefur sex Boeing 757-200 þotur í flotanum, hefur þrjú flug á topp 50 listanum en það lengsta er í 6. sæti sem er flug milli borgarinnar Anadyr, austast í Síberíu við Beringshaf, til Moskvu en um er að ræða 8:30 tíma flug þvert yfir allt Rússland.

Þá hefur Aer Lingus fjögur flug á listanum en það lengsta kemur þó ekki fyrir fyrr en í 32. sæti sem er flug frá Dublin til Washington en hin flugin þrjú eru frá Dublin til Toronto og New York og eitt frá Shannon til New York. Þess má geta Aer Lingus tók inn Boeing 757 þotur fyrir aðeins þremur árum síðan en félagið flýgur einnig til Ameríku með Airbus A330.

Neðst á listanum kemur flugfélagið Air Astana sem flýgur til London Heathrow til Astana í Kazakhstan en félagið hefur fimm Boeing 757-200 þotur í flotanum.

Hér að neðan má sjá topp 50 listann í heild sinni en hægt er að smella á myndina til að fá stærri útgáfu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga